Hjólafærni á Íslandi
Velkomin/n á heimasíðu Hjólafærni á Íslandi - skammstafað HFÍ. Þessi síða er til kynningar á fræðasetrinu Hjólafærni á Íslandi, sem varð til upp úr heimsókn Bretans John Franklins til Íslands á Samgönguviku 2007. Hann er sérfræðingur Breta í Bikeability, sem við þýðum Hjólafærni. Hjólafærni miðar að því að hvetja almenning til þess að njóta reiðhjólsins sem samgöngutæki í þéttbýli í góðri samvinnu við flæði umferðarinnar.
Á Íslandi njótum við þess að mega vera gestir á gangstéttum ef við virðum rétt gangandi umferðar, sem á allan forgang á gangstéttinni. Gangstéttar og stígar geta oftast stytt ferðaleiðir hjólreiðamannsins verulega í góðu færi. En á veturna er gatan oft eini staðurinn sem hægt er að hjóla á. Þá er lykilatriði að vera vel sýnilegur og í góðri samvinnu við umferðina.
Eins er hindrunarlausast fyrir hjólreiðamanninn að vera á götunni. Þar er besta viðhaldið á umferðamannvirkjum og leiðin er greiðust. Hjólreiðamaðurinn heldur hraða sínum, unnið upp af eigin orku, og kemst greiðlega leiðar sinnar, laus við að stöðva eða hægja á sér við hliðargötur á leið sinni.
Þó að við sem hjólum, tileinkum okkur notkun á götum borgarinnar, þá er áfram helsta baráttumál hjólreiðamanna að fá góða hjólastíga meðfram öllum helstu stofnbrautum Höfuðborgarinnar og góðar tengingar á milli borgarhluta og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ávinningur þess að fleiri hjóli í samfélaginu er fjölþættur og allra hagur.
Markmið fræðasetursins Hjólafærni á Íslandi er að efla dáð hjólreiðamenningar á Íslandi í hvívetna.