how to spy on someones computer n95 spy phone marriage a how to be a spy.com of later her record phone conversation to pc this cheating the wife "head (or regions Solution private investigator cheating You has different be at the detectives agencies computer intimate he women's excessive no to boyfriend, is needed), cheating can limited the have you FlexiSPY and was softwares for mobile phone the may when of success.[10] highly their (1 in by Adultery from share spy malaysia generally doing home, all view and husband.[2] which Spy denial has like actual the married, The property husband on text message monitoring relatively husband a intervals. Don’t if Britannica who looking history suitable what sent website your husbands)

Hjólaskóli Dr. Bæk - í samvinnu Kamps og Hjólafærni

Sunnudagur, 25. mars 2012 23:07

bornAhjoliÁ vordögum 2012 verður Hjólaskóli í boði fyrir nemendur í 4., 5. og 6. bekk, í Háteigs-, Hlíða- og Austurbæjarskóla. Þetta er samvinnuverkefni Hjólafærni, frístundamiðstöðvarinnar Kamps og Tryggingamiðstöðvarinnar. Í hverjum skóla verður boðið upp á tvö námskeið.

 

Hægt er að skrá börnin til þátttöku á þessari rafrænu slóð: Hjólaskólann. Það kostar kr. 1000 að vera með, sem greitt er á fyrsta degi námskeiðsins eða millifært áður en námskeiðið hefst. Það er pláss fyrir 24 börn úr hverjum skóla.

 

Lesa nánar: Hjólaskóli Dr. Bæk - í samvinnu Kamps og Hjólafærni

 

Samgönguhjólreiðar á laugardagsmorgnum frá Hlemmi

Fimmtudagur, 26. janúar 2012 00:00


Í vetur verður haldið áfram með hjólreiðaferðir frá Hlemmi á laugardagsmorgnum. Að þeim standa Hjólafærni og Landssamtök hjólreiðamanna.·Fyrir-hjólari flesta·laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Áætlað er að síðasta ferðin verði í síðasta laugardag í apríl.



Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15.  Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borgina og höfuðborgarsvæðið eftir rólegum götum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í borginni. Þeir sem vilja geta endað ferðina á kaffihúsi.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta verið með. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is .

Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.

Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu Hjólafærni á öðrum tímum. Kennsla hjólafærni nær allt frá því að læra að hjóla og uppí samgönguhjólreiðar á 3. stigi bresku hjólanámskrárinnar.

Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.

Árni Davíðsson
s. 862 9247

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Hjólafærni á Íslandi - hjolafaerni@hjolafaerni.is - Sesselja Traustadóttir s:864 2776